Posted by jonatan in Hraun
Hrútagjárdyngja er nærri Hrútagjá og auðveldast að nálgast hana með því að aka út af Krýsuvíkurvegi norðan við Sveifluháls þar sem vegvísir merktur Djúpavatn er staðsettur. Aka þarf stuttan spöl upp á hæðardrag og þá er hraunhryggur á hægri hönd. Fyrir miðju hans er skilti sem vísar á Grænklofa í austanverðri dyngjunni. Þar er skysamlegt að hefja gönguför og byrja á að skoða Grænklofa sem er sprunga í hraunbrúninni. Mælt er með því að ganga síðan norður meðfram hrauninu í áttina að Fjallinu eina, en fylgja brúninni þar til komið er að stikum sem vísa á Reykjaveginn. Þar blasir við gjárhlið og innan við það er hrauntröðin sem heitir Hrútagjá. Þar héldu Hraunamenn hrúta sína á haustin og fram undir aðventu þegar tíðarfar leyfði. Read the rest of this entry »
No Comments »
Posted by jonatan in Strönd
Fiskaklettur var lengi einskonar útvörður Hafnarfjarðar á meðan bærinn var lítill kaupmannsbær. Það var mjög aðdjúpt við klettinn og fiskigöngur áttu það til að lóna við klettinn. Hann var kjörinn veiðistaður og þaðan er nafnið dregið.
Á uppdrætti sem unninn var eftir mælingum sem sjóliðsforinginn H.E. Minor gerði 1776-78, eru þau fáu hús sem stóðu við Hafnarfjörð merkt inn ásamt þeim kennileitum sem markverðust þóttu. Þar á meðal er Fiskaklettur sem er sýndur rétt vestan við verslunarhúsin í Akurgerði. Read the rest of this entry »
No Comments »
Posted by jonatan in Hraun
Hraunanöfn eru mun fjölbreytilegri en í fyrstu má ætla. Þetta sést þegar skoðuð er meðfylgjandi tafla yfir nöfn á nokkrum hraunum innan Álftaneshrepps hins forna. Ætlunin er að útbúa kort þar sem hraunanöfnum verður komið fyrir á réttum stöðum á loftmynd. Hraunanöfnin er sum hver mjög mikilfengleg og jafnvel upplýsandi en önnur geta verið nokkuð torræð. Fleiri nöfn á hraunum eru þekkt á þessu svæði, en taflan er sett fram til að vekja athygli á að hraun er ekki bara hraun, þau hafa gegnt mismunandi hlutverki eins og lesa má út úr sumum nafnanna.
Á myndinni er Selkletturinn í Selgjá, nærri tóftum nokkurra selja sem eru í nyrsta enda gjárinnar. Myndin stækkar ef smellt er á hana. Read the rest of this entry »
No Comments »
Posted by jonatan in Hraun
Skammt sunnan við álverið í Straumsvík stendur lítið bárujárnshús sem nefnist Gerði, fyrrum hjáleiga frá Þorbjarnarstöðum í Hraunum. Húsið er nú í eigu starfsmannafélags álversins í Straumsvík en var áður sumarhús Ragnars Péturssonar kaupfélagsstjóra í Hafnarfirði og fjölskyldu hans. Meðan Gerði var enn bújörð bjuggu þar m.a. Guðjón Jónsson frá Setbergi og Stefanía kona hans, ásamt tveimur sonum sínum og fóstursyni. Gerði fór í eyði líkt og fleiri jarðir í Hraunum um 1930. Milli Gerðis og Þorbjarnarstaða eru merkar ferskvatnstjarnir sem bera nöfn eins Þorbjarnarstaðavatnagarðar, Gerðistjörn, Brunntjörn og Staka tjörn. Read the rest of this entry »
No Comments »
Posted by jonatan in Hraun
Nyrsti hluti Búrfellshrauns nefnist Garðahraun og skiptist í Engidalshraun og Klettahraun
sem er líka nefnt Klettar. Allra nyrst er Gálgahraun þar sem hraunið gengur fram í Lambhúsatjörn og Skerjafjörð. Þetta er gott útivistarland og margt að sjá í hrauninu og fjörunni. Gróðurfar er fljölbreytt, klettamyndir stórfenglegar, djúpar gjótur og grunn jarðföll setja svip á landið og ströndin er heillandi. Við hraunjaðarinn eru fallegir bollar og hraunstrýtur og klettar af öllum stærðum. Myndarlegustu klettarnir bera einkennandi nöfn eins og Stóriskyggnir og Litliskyggnir og skammt frá þeim eru Vatnagarðarnir og Vatnagarðaklettar. Frægustu hraundrangarnir eru Gálgaklettar, eða Gálgar, sem eru þrír stórir hraundrangar sem standa í þyrpingu. Þeir skiptast í Vesturgálga, Miðgálga og Austurgálga. Gálgaklettar eru í rauninni þríklofinn klettur og ber hver hluti hans sitt eigið nafn en hann hafa líka verið nefndir einu nafni Gálgaklofningar.
Read the rest of this entry »
1 Comment »
Posted by jonatan in Hraun
Búrfell og Búrfellsgjá eru í næsta nágrenni höfuðborgarsvæðisins við suðausturenda Vífilsstaðahlíðar. Þetta er ein af mörgum perlum í Heiðmörk, einu vinsælasta útivistarsvæði landsins. Það er auðvelt að ganga á Búrfell með viðkomu í fjárréttinni sem er í botni gjárinnar. Skammt frá Búfellsgjá eru vallgrónir vellir sem nefnast Garðavellir. Þar eru húsatóftir í brekkurótum sem enginn veit hversu gamlar eru. Sagnir eru um að þar hafi Garðakirkja staðið til forna. Það verður enginn svikinn af gönguferð um Búrfellsgjá. Read the rest of this entry »
No Comments »
Posted by jonatan in Minjar
Hvenær á að vernda hraun og hvenær er réttlætanlegt að leggja það undir mannvirki? Þessi spurning leitaði á hugann fyrir tíu árum þegar fram komu hugmyndir um færslu Álftanesvegar út á Garðahraunið. Spurningin vaknaði aftur þegar framkvæmdir hófust við verslunarsvæðið í Urriðakotshrauni með ótrúlegu raski og vegaframkvæmdum, þrátt fyrir ákvæði um hverfisvernd hraunsins. Og nú blasir enn eitt málið við í Garðahrauni við Álftanesveg. Þar er nýtt hverfi að verða að veruleika steinsnar frá þeim stað sem Kjarval sat löngum stundum með trönur og olíuliti og töfraði fram listarverk sín. Nú eru uppi hugmyndir um að stækka byggingarreitinn enn frekar og raska þar með því svæði sem Kjarval hellaðist af. Read the rest of this entry »
No Comments »
Posted by admin in Hraun
Alfaraleiðin er elsta kunna samgönguleiðin milli Suðurnesja og Innnesja Reykjanesskagans. Um hana fóru allir skreiðar- og vöruflutningar. Vermenn sem fóru um norðanverðan skagann fylgdu þessari götu á ferðum sínum í og úr verinu. Bændur og kaupmenn, ferðamenn og vinnuhjú fylgdu þessum fjölfarna götuslóða um aldir, eða allt þar til Gamlivegur, fyrsti vagnfæri Suðurnesjavegurinn var lagður um 1900. Þá lagðist Alfaraleiðin af. Allflestar vörður voru rifnar niður af vegagerðarmönnum og leiðin gleymdist smám saman. Hluti leiðarinnar hefur orðið nútímanum að bráð, farið undir golfvöll, lent undir Reykjanesbrautinni á stöku stað og horfið að hluta þegar mikil efnistaka átti sér stað í Kapelluhrauni á sjötta og sjöunda áratug 20. aldar. Víða er þessi leið að gróa upp og hverfa en þó getur glöggt útivistarfólk auðveldlega fetað sig eftir Alfaraleiðinni með því að leggja sig örlítið fram og fylgja þeim vörðum sem enn standa og skýrum kennileitum. Read the rest of this entry »
1 Comment »