Aðalfundur Hraunavina 12. nóvember kl. 11:00

Þetta er leiðin að Haukshúsi

Aðalfundur Hraunavina verður haldinn í Haukshúsi á Álftanesi laugardaginn 12. nóvember kl. 11.00 um morguninn.

Aðalfundurinn er jafnframt kynningarfundur á gildi Árósarsamningsins um umhverfisvernd og mannréttindi sem nýlega var samþykktur á Alþingi. Samningurinn veitir áhugafólki um umhverfismál og náttúruvernd möguleika á að hafa áhrif á og gera athugasemdir við fyrirhugaðar framkvæmdir sem snerta ósnortna náttúru eða tengjast menningarminjum. 

Hingað til hafa stjórnvöld ekki þurft að taka tillit til gagnrýni eða athugasemda sem félagasamtök og/eða einstaklingar, sem eiga ekki lögvarin réttindi, hafa komið með í tengslum við slíkar framkvæmdir. Þetta á að breytast með innleiðingu Árósarsamningsins og færa landsmönnum nothæf verkfæri til að hafa bein áhrif á það hvernig stjórnun framkvæmda út frá nátturuverndar- og umhverfislegum  sjónarmiðum fer fram hér á landi. Sigríður Arnardóttir lögfræðingur í Umhverfisráðuneytinu mun jafnframt segja frá ýmsum lögum og reglum sem þarf að breyta í tengslum við lögleiðingu Árósarsamningsins.

Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka með sér gesti, því fundurinn er öllum opinn.

 Dagskrá:

 1. Fundur settur.

2.  Venjuleg aðalfundarstörf.

3. Sigríður Arnardóttir lögfræðingur í Umhverfisráðuneytinu segir frá Árósarsamningnum um umhverfismál og mannréttindi.

4. Önnur mál.

Húsið vinstra megin á myndinn er Haukshús. Við hlið þess er aðstaða golfiðkenda á Álftanesi.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *