Nokkrir sumarbústaðir voru byggðir í Hraunum við Straumsvík nokkru fyrir miðja 20. öldina. Meðal þeirra sem heilluðust af þessu sérstæða og að margra mati fallega landsvæði voru þrír félagar, bræðurnir Marinó og Kristinn Guðmundssynir sem voru báðir málarameistarar og Björn Jóhannesson doktor í jarðvegsfræði sem hafði mikinn áhuga á hegðun laxfiska. Þeir voru afar heillaðir af Lónakoti og tjörnunum sem þar eru en þar gátu þeir ekki fengið land á leigu eða til kaups. Gengu þeir þá eftir strandlengjunni frá Lónakoti og inn fyrir Straumsvík til Hafnarfjarðar og þaðan út á Álftanes í leit að ákjósanlegum stað til að reisa sumarkofa eins og þeir kölluðu það. Eftir að hafa grandskoðað strandlengjuna voru þeir sammála um að innsti hlutinn við norðaustanverða Straumsvík væri ákjósanlegasti staðurinn. Þar hafði staðið kotbýlið Litli-Lambhagi á tanga sem heitir Stróki og skammt frá honum voru Hólmarnir og Straumsvatnagarðar. Þar voru aflögð útihús og merkiklega vel hlaðið eldhús úr hraungrjóti frá því seint á 19. öld. Eftir nokkra eftirgrenslan fengu þremenningarnir leyfi til að reisa lítið íveruhús innarlega á Stróka. Bjarni Bjarnason skólastjóri Héraðsskólans á Laugarvatni átti þetta land allt, en hann eignaðist jarðirnar Straum og Þorbjarnarstaði ásamt Litla- og Stóra-Lambhaga árið 1919. Rak hann um árabil ágætis bú í Straumi og nytjaði allar jarðirnar til heyskapar og beitar. Bjarni lét byggja Straumshúsið sem enn stendur árið 1927 úr steinsteypu eftir að gamli bærinn brann. Sá sem teiknaði húsið var Guðjón Samúelsson húsameistari ríkisins, en húsið ber svipmót burstabæjar, en Guðjón hafði áhuga á að skapa nýja íslenska byggingarhefð með skírskotun til fyrri tíma. Read the rest of this entry »
Author ArchiveStjórnarfundur nr. 44, haldinn 1. febrúar 2011 Read the rest of this entry » Hraunavinir er félag fjölmargra áhugamanna um náttúruvernd og byggðaþróun í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi. Félagið leggur einkum áherslu á hið sérstæða umhverfi, hraun, vötn og strendur sem teljast til bæjarlanda þessara þriggja sveitarfélaga. Skiplagsmál snerta félagsmenn til jafns við umgengni við náttúruna og nærumhverfið. Félagið leggur áherslu á samvinnu við sveitastjórnir og aðra um að skipulag framkvæmda fari fram í góðri sátt við íbúana og með virðingu fyrir fallegu umhverfi og náttúru. Þeir sem skipa stjórn Hraunavina eru: Pétur Stefánsson, formaður pshs@internet.is Ólafur Proppé, ritari proppe@hi.is Þorsteinn Þorsteinsson, gjaldkeri thorst@fg.is Guðfinna Guðmundsdóttir, meðstjórnandi gudfinna@hafnarfjordur.is Reynir Ingibjartsson, meðstjórnandi reyniring@internet.is Ef þú hefur áhuga á að gerast félagi getur þú sent tölvupóst á netfang einhvers stjórnamanna eða á Jónatan Garðarsson umsjónarmann heimasíðu Hraunavina jonatang@simnet.is. Ekkert félagsgjald er innheimt. Það sem þarf að koma fram í tölvupóstinum er nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer. Stjórnarfundur nr. 42. 12. desmber 2011 Read the rest of this entry »
Dec
28
2011
Grænavatnsganga í tilefni aldarminningar Sigurðar ÞórarinssonarPosted by jonatan in Félagsstarf
Á þessum degi ætla félög og samtök sem tengjast náttúruvísindum, náttúruvernd og útiveru að efna til blysfarar kringum Grænavatn í Krýsuvík. Brottför með rútu frá skrifstofu Ferðafélags Íslands Mörkinni 6 kl. 14, sunnudaginn 8. janúar. Fargjald í rútur er kr. 1000 og greiðist við brottför. Þeir sem fara á einkabílum greiða ekki gjald. Þátttakendum í gönguferðinni eru útveguð blys en fólk er einnig hvatt til að taka með sér eigin blys eða kyndla. Read the rest of this entry »
Svo vel vill til að margar þjóðir halda hátíðir um þessar mundir til að fagna væntanlegum umskiptum náttúrunnar og einnig til að einblína á kærleikann, nýtt og betra líf og bjartari framtíðarhorfur. Read the rest of this entry »
Skipulags- og byggingarráð og Umhverfis- og framkvæmdaráð fagna því hve vel tókst til með hreinsun hraunsins þann 16. september og færa þeim sem þar tóku þátt bestu þakkir fyrir þeirra framlag. Sérstaklega er Hraunavinum þakkað þeirra frumkvæði að þessu hreinsunarátaki. Lagt er til að 16. september verði árlega dagur hreinsunar og er umhverfisteymi ráðanna falið að vinna áfram að því máli. Ársfundur Hraunavina var haldinn í Haukshúsi á Álftanesi laugardaginn 12. nóvember 2011 og hófst hann klukkan 11:00. Hér er hægt að lesa fundargerð ársfundarins. Read the rest of this entry » Hraunavinir héldu aðalfund sinn í Haukshúsi á Álftanesi laugaradaginn 12. nóvember 2011. Pétur Stefánsson formaður flutti skýrslu stjórnar þar sem helstu viðburðir starfstímabilsins 2010 til 2011 voru tíundaðir. Auk venjubundinna aðalfundarstarfa flutti Sigríður Auður Arnardóttir lögfræðingur í Umhverfisráðuneytinu erindi um Árósarsamninginn og síðustu skrefin í að löggilda hann. Hér að neðan er hægt að lesa skýrslu stjórnar. Read the rest of this entry » |





Entries (RSS)