Vegagerðin heitir Vegagerðin af ástæðu. Það er hlutverk skipulagsyfirvalda í Garðabæ að koma fram með fleiri möguleika og velta þeim upp með bæjarbúum.

Pálmi Freyr Randversson skrifar:

Hvers vegna nýjan Álftanesveg?

Til stendur að leggja nýjan Álftanesveg í gegnum Garðahraun eins og flestum ætti að vera kunnugt. En er þörf á nýjum Álftanesvegi? Á akstur í gegnum Garðabæ til Álftaness að eiga sér stað á vegi sem býður upp á hraðakstur og óhindrað umferðarflæði? Er hægt að bæta umferðaröryggi með öðrum lausnum en nýjum vegi? Hvernig lítur dæmið út þegar/ef Garðabær og Álftanes sameinast? Væri þá ekki eðlilegra að tengja svæðin saman með rólegri bæjargötu frekar en því sem fyrirhugað er?

Nýr Álftanesvegur, með tilheyrandi mislægum gatnamótum, hljóðmönum, vegöxlum, aðreinum, fráreinum og annarri vegagerð, verður tilbúinn í júlí 2014. Forsendur fyrir lagningu vegarins eru uppbygging Garðaholtsins og umferð 20.000 bíla á sólarhring árið 2024. Núna fara um það bil 4.000 bílar eftir Álftanesvegi á dag. Umferðarflæði er því ekki vandamálið. Umferðaröryggi er hins vegar ábótavant á núverandi vegi og vert að huga að. Þróunin í löndunum í kringum okkur og sömuleiðis innanlands undanfarin ár hefur verið á þá leið að draga frekar úr umferðarhraða og forðast hraðbrautaskipulag einmitt til að stuðla að bættu umferðaröryggi. Núverandi Álftanesvegur er tilvalinn til að þróa í þessa átt. Þrenging götunnar, styttri sjónlengdir, hraðahindranir, margar tegundir umferðar á sama svæði og almenn meðvitund ökumanna um að vera akandi í mannlegu umhverfi er að flestra mati sú lausn sem hentar. Hlutverk Vegagerðarinnar hefur hingað til ekki verið að kynna lausnir af þessu tagi. Vegagerðin heitir Vegagerðin af ástæðu. Það er hlutverk skipulagsyfirvalda í Garðabæ að koma fram með fleiri möguleika og velta þeim upp með bæjarbúum.

Hvernig væri að bíða eftir byggðinni og sjá hvernig tímarnir breytast? Ef til vill mun þéttari byggð skapa betri aðstæður fyrir góðum almenningssamgöngum. Kannski breytast líka forsendur fyrir sjálfri byggðinni í nánustu framtíð.

Endurbættur Álftanesvegur í núverandi vegstæði gæti orðið mikilvæg borgargata í stað þess að vera jaðarvegur til hraðaksturs sem klýfur byggðina frá hrauninu og sjónum. Þannig mistök er verið að leiðrétta í öðrum borgum og er tækifæri fyrir Garðabæ til að læra af  reynslu annarra í þessu tilliti. Munum að Vegagerðin býður með skóflurnar en Garðabær fer með skipulagsvaldið.

Þetta snýst um í hvernig bæ við viljum búa.  

Pálmi Freyr Randversson

Garðbæingur og borgarhönnuður

  Hægt er að stækka myndina með því að smella á hana.

2 Comments

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *