Málefni

Stundarfriður

Á fundi sem Hanna Birna Kristjánsdóttir hélt föstudaginn 27. september mættu fulltrúar Hraunavina og annarra náttúruverndarsamtaka, ásamt fulltrúum Vegagerðarinnar og bæjaryfirvalda í Garðabæ.

Vinnuhópur var settur á laggirnar til að reyna að sætta sjónarmið og mun verktakinn einbeita sér að öðrum þáttum veglagningarinnar næstu sjö til tíu daga og ekki fara í framkvæmdir í Gálgahrauni á meðan.

Ráðherra fól Vegagerðinni að ræða málið við verktakann og kynna breytta vinnutilhögun fyrir fulltrúum náttúruverndarsamtaka í næstu viku.

Athyglisverð frétt birtist á heimasíðu Vegagerðarinnar 27. september, sem lýkur á eftirfarandi fullyrðingu: „Fulltrúar Garðabæjar sögðu alveg ljóst að skipulagi yrði ekki breytt þannig að nýi vegurinn yrði fluttur úr hrauninu í núverandi vegstæði.“

Þetta er merkilegt orðalag og þessi frétt á heimasíðu Vegagerðarinnar er í þeim anda að það er full ástæða fyrir alla sem vilja bjarga Gálgahrauni að vera áfram á varðbergi.

Málefni

Mannleg keðja

hraunid1Hraunavinir mynduðu mannlega keðju í og við Gálgahraun í dag og náðu að koma í veg fyrir að gröfurnar færu inn í hraunið. Baráttan heldur áfram.

Málefni

Gálgahraun vaktað

GröfurHraunavinir hafa mætt á hverjum morgni að undanförnu við jaðar Gálgahrauns og vaktað svæðið. Miðvikudagsmorguninn 18. sepember voru gröfurnar komnar að hrauninu eftir að hafa rutt sér leið í gegnum mólendið milli Álftanesvegar og Gálgahrauns. Hraunavinir settust fyrir framan gröfurnar og höfðu sig ekki í frammi. Lögreglan kom á staðinn en aðhafðist ekkert.
Síðan kom yfirmaður frá Íslenskum aðalverktökum og loks var sæst á að gröfurnar mokuðu burtu moldarhaug sem var upp við hraunið og út að vegstæðinu utan við hraunið. Handsalað var að ekki verði hreyft við hrauninu fram að helgi og gert um það heiðursmanna samkomulag.
Eftir þetta var farið á skyndifund hjá Vegagerðinni, þar sem ÍAV-menn vísa á Vegagerðina þegar þeir eru inntir eftir svörum varðandi málið. Hraunavinri hittu nokkra yfirmenn hjá Vegagerðinni í hádeginu en vegamálastjóri er ekki á landinu. Fram kom á fundinum að Vegagerðin ætlar að halda verkinu áfram þrátt fyrir að tvö dómsmál séu í gangi og mótmæli Hraunavina.
Hraunavinir halda áfram að vakta Gálgahraun hvað sem á dynur. 
 
Málefni

Flogið yfir Gálgahraun

Skarphéðinn Snorrason flaug fjarstýrðu flygildi yfir Gálgahraun og myndaði það úr lofti eins og sést á meðfylgjandi myndbandi, sem Árni Haraldsson klippti saman.

Smellið á þessa slóð:

https://vimeo.com/74594968
Málefni

Vakt í Gálgahrauni

Gálgahraun_16sept_DaguríslenskrarnáttúruNokkrir Hraunavinir voru mættir í Gálgahraun að morgni 16. september á Degi íslenskrar náttúru. Þar á meðal var afmælisbarnið Ómar Ragnarsson. Þarna var líka formaður Hraunavina Reynir Ingibjartsson og fleira fólk.

read more »

Málefni

Um 200 manns mættu til að mótmæla framkvæmdum í Gálgahrauni

Þrátt fyrir norðankulda og talsvert hvassviðri komu um 200 manns saman á bílastæðinu við Prýðahverfi við Álftanesveg sunnudaginn 15. september og gengu fylktu liði með græna fána og íslenska fánann í áttina að Garðastekk.

Gengið var að þeim stað þar sem skurðgrafa vann óbætanlegt tjón á hraunjaðri Gálgahrauns föstudaginn 13. september. Þar var fánum komið fyrir í sárinu eftir gröfuna. Í lok göngunnar var eftirfarandi ályktun samþykkt:

Ályktun samþykkt í mótmælagöngu um Gálgahraun 15. september 2013:

read more »

Málefni

Ákall – Verndum Gálgahraun

Grafa í Gálgahrauni 004Að morgni föstudagsins 13. september var farið með skurðgröfu inn í Gálgahraun og þar hafa verið unnar óafturkræfar skemmdir, sem sjást hér á meðfylgjandi ljósmyndum. Þetta er mjög nálægt fornminjunum Garðarstekk og gömlu fjárborginni, sem eru merkar minjar og gamalli þjóðleið sem hefur sögulegt gildi. 

Tökum höndum saman  –  Verndum Gálgahraun

Gálgahraun1Gálgahraun2Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur hafnað beiðni fernra umhverfisverndarsamtaka um lögbann á lagningu vegar í Gálgahrauni þar sem samtökin eigi ekki lögvarða hagsmuni í málinu. Kæra vegna þessarar synjunar sýslumanns hefur þegar verið lögð fram til úrlausnar héraðsdóms.

Ennfremur er nú rekið mál fyrir héraðsdómi Reykjavíkur á hendur vegamálastjóra til viðurkenningar á ólögmæti vegaframkvæmdanna.

Á sama tíma eru framkvæmdir hafnar við fyrirhugaðan Álftanesveg og aðeins dagaspursmál hvenær farið verðGrafa í Gálgahrauni 006ur að mylja hraunið undir veg.

Til að mótmæla þessu ætla hraunavinir að safnast saman í Gálgahrauni á sunnudaginn kemur, 15. september kl.tvö (14.00) og koma fyrir fánum í fyrirhuguðu vegstæði Álftanesvegar.

Safnast á saman við innkeyrsluna í Prýðishverfi (Gálgahraun) norðan núverandi Álftanesvegar.

Þátttakendur eru hvattir til að hafa með sér íslenska fána, en auk þess verða grænir fánar til staðar. Gengið verður frá hringtorgi við Hraunsholtsbraut og fánum komið fyrir og að Garðastekk, vestan Gálgahrauns.

Næsta dag, mánudaginn 16. september er Dagur íslenskrar náttúru og afmælisdagur Ómars Ragnarssonar. Það er mikilvægt að allir velunnarar Gálgahrauns og um leið íslenskrar náttúru, taki forskot á sæluna og mæti með fána í hönd til verndar Gálgahrauni og öðrum náttúruverðmætum á Íslandi.

Um leið verður að standa vörð um rétt umhverfisverndarsamtaka á Íslandi til aðgangs að réttarúrræðum í málum sem þessum í samræmi við ákvæði EES-samningsins og Árósasamningsins sem Ísland hefur fullgilt. Mál fernra samtaka um ólögmæti framkvæmda í Gálgahrauni er því prófmál sem varðar alla umhverfisverndarsinna.

Búið er að veita á fjárlögum ríkisins á annan milljarð króna í fyrirhugaðan Álftanesveg. Hraunavinir hafa lagt það til við hagræðingarhóp ríkisstjórnarinnar, að spara skattborgurunum þessi útgjöld. Best væri þó að verja þessum fjármunum til Landsspítalans og hugsanlega um leið að bjarga mannslífum.

Látum þetta neyðarkall úr Gálgahrauni berast og fjölmennum þangað á sunnudaginn kl. 14.

Bílastæði má finna við gatnamótin í Prýðishverfið og eins norðan Hrafnistu.

Hraunavinir.

Grafa í Gálgahrauni 001

 

Félagsstarf

Lögbann á Vegagerðina

Hraunavinir, Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands og Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands hafa óskað eftir því við Sýslumanninn í Reykjavík að sett verði lögbann á framkvæmdir við nýjan Álftanesveg, þar sem þær eru ólögmætar.

Fyrr í sumar var þingfest mál á hendur vegamálastjóra til staðfestingar á ólögmæti framkvæmdanna. Samtökin fjögur lýsa furðu á umfjöllun Vegagerðarinnar um málið á vefsvæði sínu. Vegagerðin virðist líta svo á að hún eigi sjálfdæmi í ágreiningsmálum sem að henni snúa. Þetta er allt önnur framkvæmd en sú sem fór í umhverfismat á sínum tíma. Þegar framkvæmdir hefjast ekki innan tíu ára frá því að mat á umhverfisáhrifum liggur fyrir ber að taka ákvörðun um endurskoðun þess að hluta til eða í heild samkvæmt 12. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum. Engin slík ákvörðun hefur verið tekin.

Hér er hægt að skoða gögnin nánar: logbann

Málefni

Fern umhverfisverndarsamtök stefna vegamálastjóra vegna Álftanesvegar

 

Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands og Hraunavinir hafa stefnt Vegamálastjóra fyrir hönd Vegagerðarinnar, til viðurkenningar á því að framkvæmd sú um gerð Álftanesvegar milli Hafnarfjarðarvegar og Bessastaðavegar um þvert Gálgahraun, sem Vegagerðin auglýsti með útboði hinn 7. ágúst 2012 sé ólögmæt.

Þau Skúli Bjarnason, hrl. og Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir, hdl., lögmannsstofunni Málþingi ehf., reka málið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, f.h. samtakanna.

Hér er um  prófmál að ræða varðandi rétt umhverfisverndarsamtaka og hópa til að láta reyna á fyrir dómi lögmæti framkvæmda sem raskað geta ósnortinni náttúru og valdið óafturkræfum náttúruspjöllum. Síðustu ár hefur átt sér stað mikilvæg réttarþróun í þá veru að styrkja aðkomu umhverfisverndarsamtaka að málum sem þessum.

Í nokkur ár hafa staðið deilur um lagningu nýs Álftanesvegar milli Hafnarfjarðarvegar og Bessastaðavegar. Deilurnar hafa snúist um það hvort leggja skuli hluta hins nýja vegar yfir ósnortið hraun – Gálgahraun í landi Garðabæjar, en hraunið er á Náttúruminjaskrá.

Bent hefur verið á að forsendur fyrir framkvæmdinni hafi gjörbreyst frá upphaflegri áætlun. Byggðaþróun hefur orðið með allt öðrum hætti en spáð var og ekkert útlit er fyrir að þar verði stórfelldar breytingar í bráð sem kalli á viðlík náttúruspjöll. Yfirvöld í Garðabæ og Vegagerðin hafa hins vegar staðið þvert gegn formlegri endurskoðun framkvæmda og athugun á einfaldari, náttúruvænni og ódýrari kostum. Viðhorf almennings og réttarþróun hafa sömuleiðis breyst verulega á þeim rúmu 11 árum sem liðin eru frá endanlegri útgáfu umhverfismats.

Stefnendur telja að útboð það um veginn sem auglýst var 7. ágúst 2012 hafi verið ólöglegt þar sem bæði framkvæmdaleyfi og umhverfismat hafi verið útrunnin, en engar framkvæmdir hafi hafist á gildistíma þeirra. Því þurfi að taka málið upp að nýju og setja í löglegan farveg. Ekki hefur enn verið skrifað undir verksamning.

Skýrslur

Athugasemdir við greinargerð Vegagerðarinnar og Garðabæjar um Álftanesveg.

Hér er hægt að lesa athugsemdir sem stjórn Hraunavina gerði við greinargerð vegamálastjóra og bæjarstjóra Garðabæjar:

Stofnun Hraunavina og markmið.

 Á árinu 2006 hófust umræður um stofnun félags sem hefði það að markmiði að sporna gegn stöðugri eyðingu ósnortinna hrauna og fleiri landslagsverðmæta í bæjarlandi Garðabæjar og Hafnarfjarðar.

Þann 11. apríl 2007 var félagið Hraunavinir stofnað og í fyrstu grein laga félagsins segir: ,,að Hraunavinir sé félagsskapur sem lætur sér annt um byggðaþróun og umhverfismál í Álftaneshreppi hinum forna, einkum hið sérstæða umhverfi, hraun, vötn og strendur sem teljast til bæjarlands í Garðabæ, Hafnarfirði og á Álftanesi”.

Allt frá stofnun félagsins hafa félagsmenn fylgst náið með fyrirhuguðum framkvæmdum í hraununum, ekki síst í Garðahrauni og Gálgahrauni sem eru hluti Búrfellshrauns. Hefur félagið margítrekað varað við áformum um lagningu nýs Álftanesvegar um ósnortið hraunið.

read more »